Eden Grunnreglurnar 10

  1. Einmanaleiki, vanmáttarkennd og leiði valda þjáningu og hafa skaðleg áhrif á líkamlega og andlega heilsu.

  2. Lifandi samfélag án aðgreiningar sem byggir á umhyggju og þátttöku allra óháð aldri og getu, gerir öllum mögulegt að líða vel.

  3. Við njótum okkar þegar við höfum auðveldan aðgang að samneyti við fólk, einsog við þörfnumst. Það er mótefni gegn einmanaleika.

  4. Við njótum okkar þegar líf okkar hefur tilgang og við höfum tækifæri til að gefa ekki síður en að þiggja. Það er mótefni gegn vanmætti.

  5. Við njótum okkar þegar tilbreyting og óvæntar uppákomur eru hluti af lífinu. Það er mótefni gegn leiða.

  6. Merkingalaus virkni hefur tærandi áhrif á mannsandann. Tilgangur með virkni er einstaklingsbundinn og nauðsynlegur fyrir heilsu okkar og velliðan.

  7. Við erum persónur með sjúkdóma en skilgreinum okkur ekki út frá þeim. Læknismeðferð getur stutt og eflt okkur til lífs sem er þess virði að lifa því.

  8. Einstaklingar eiga að vera aðilar að ákvarðanatöku í öllum málum er þá varða. Valdefling virkjar sjálfræði, valfrelsi og eykur áhrif í daglegu lífi.

  9. Að breyta menningu er verkefni sem aldrei lýkur, það krefst samstarfs, úthalds og opins huga. Við þurfum stöðugt að læra, þróast og aðlagast nýjum aðstæðum.

  10. Forystan er lykillinn að mikilvægum, varanlegum breytingum. Ekkert getur komið í hennar stað.

Eden verkfæri Grunnreglurnar 10.pdf