„Þau hjúkrunarheimili sem óska eftir að fá alþjóðlega viðurkenningu sem Eden heimili sækja formlega um á sérstökum eyðublöðum til Eden Ísland. Þegar umsókn er send inn fer í gang ákveðið umsóknarferli þar sem gerðar eru ákveðnar úttektir á starfsemi hjúkrunarheimilisins. Úttektin felur í sér að rýna í starfsemina úr frá ákveðnum viðmiðum og gera svokallaða hlýleikakönnun sem er könnun með stöðluðum spurningum fyrir íbúa, aðstandendur og starfsmenn. Þessi könnun er gerð til að fá raunsæja mynd af menningu og andrúmslofti heimilisins og líðan þeirra sem þar búa og starfa. Að fá skráningu sem Eden heimili er ákveðinn gæðastimpill sem þarf að endurnýja á tveggja ára fresti. “
Eftirfarandi hjúkrunarheimili hafa hlotið viðurkenningu sem Eden heimili
Hlíð, Lögmannshlíða og Dagþjálfunin Hlíð
Akureyri
Áður Öldrunarheimili Akureyrar